Annie Leibovich

Um daginn horfði ég á heimildarþátt á Rúv um ljósmyndarann Annie Leibovich.
Hún hefur tekið myndir fyrir blöð á borð við Rolling Stones & Vanity fair.
Hún er þekktust fyrir myndirnar af John Lennon & eiginkonu hans Yoko Ono.
Þær voru teknar aðeins nokkrum klukkustundum áður en bítillinn víðþekkti var skotinn til dauða.
Ljósmyndir hennar eru hver annarri einstakari.
Mæli með því að horfa á heimildarmyndinna um hana og auðvitað að google-a hana.












Annie Leibovich er komin í hóp uppáhalds ljósmyndara minna.

3 comments:

Anonymous said...

tók hún ekki þarna umdeildu myndina af miley cyrus?

The AstroCat said...

Jú mikið rétt.

Soren Lorensen said...

good choices of photographs ; )