SingStar

Seinasta föstudag, þann 25.febrúar tók ég þátt í Söngkeppni MH. Ég söng lagið Girl with one eye með Florence and The Machine.Keppnin var haldin í Austurbæjarbíó og var hún rosalega flott í alla staði.
Ég vann ekki keppnina, var þó fab þrátt fyrir það ;) Það var Stefanía Svavarsdóttir sem vann keppnina og ég þori að veðja uppá það að hún vinni aðal keppnina, hún er með svakalega rödd. Rosalega flott söngkona hér á ferð. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af mér í söngkeppninni teknar af Álfheiði Erlu.

Last friday I took part in a singing contest at my school. I did not win but I was still very fabulous :) 
I sang a song by Florence and The Machine, the song is called Girl with one eye. Very cool song. 
Here below are photos of me taking part, the photos are taken by Álfheiði Erlu, a very good photographer.






Back to the future

Irina Werning tók þessa myndaseríu, mjög skemmtileg. Sannar að fólk breytist ekkert.

People don't change. Photos by Irina Werning.






Fuji Instax Wide Instant Camera

Ég varð 20 ára seinasta þriðjudag (15.feb). Ég er ekki mikið fyrir að eiga afmæli sjálf svo ég planaði ekkert sérstakt fyrir daginn minn. Vinkonur mínar voru ekki að fýla það að ég ætlaði bara að horfa framhjá þessu svo þær plönuðu í staðinn mannrán, þær rændu mér. Þær komu í skólann, rændu mér og tók mig í bláa lónið.
Mjög óvænt og skemmtilegt. Um kvöldið var afmæliskvöldverður með fjölskyldunni. Þá komu þau mér einnig á óvart og gáfu mér ótrúlega skemmtilega myndavél Fuji Instax Wide Instant Camera!!!
Mega sátt með vélina. Myndirnar koma mjög vel út.





Tattoos

Ég er ekki á leiðinni að fá mér tattú eða neitt þannig í bráð en ég elska fólk með tattú. Mér finnst tattú ótrúlega flott á sterkum týpum. Hef gaman að því þegar fólk fær sér tattú sem þýða eitthvað eða bara ekki.
Heillast rosalega af fallegum mönnum með tattú...ehehehe.
Vinkonur mínar gera mikið grín af þessu því ég er akkurat ekki þessi týpa sem er á leiðinni að fá sér eitt, kanski tvö stykki tattú.
Eitt er víst, mér finnst tattú oft og í flestum tilvikum (samt ekki öllum) vera mjög flott.

I'm not on the way to get myself a tattoo but I love seeing people with tatt's all over. There is just something about tattoos that is so beautiful (not always though ;) ).
One thing is for sure, I think tattoos are very cool! 











Andreas Öhlund

Andreas Öhlund er ljósmyndari sem hefur heillað mig upp úr skónum núna nýlega.
Hann hefur verið að mynda fyrir danska tískublaðið Cover meðal annars.
Hér getið þið skoðað heimasíðun hans. Ég mæli með því að fara í gegnum allt, myndirnar eru þess virði að skoða. Eitthvað svo skemmtilegt og persónulegt við hverja einustu mynd.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir eftir hann, fengnar af síðunni LUNDLUND.

Andreas Öhlund is a photographer that has cought my eye these last days. His work is very inspirational and worth looking at. Here you can look at his website but I got the pictures here below from the site LUNDLUND.